Bíddu nú aðeins við....eitt augnablik;)

Bíddu nú aðeins við....eitt augnablik;)

23.10.2008 23:17:31 / puff

djók allt í rugli

ok
Milljón og eitt ár síðan ég bloggaði.
Erum flutt uppá Bifröst, önnin er meira en hálfnuð en hvað um það...
Magnús Bjartur er komin með allar tennurnar fyrir utan 2 ára jaxlana og í gær varð hann 14 mánaða gamall.
Hann er byrjaður að tala aðeins en uppáhalds orðið hans er datt þessa dagana.

En svona til að hressa aðeins upp á kreppuna varð ég að skella þessu inn. Stal þessu frá henni Siggu Láru vinkonu Jódísar, bara tær snilld...:)


SÓSÍALISMI
Þú átt 2 kýr.
Þú gefur nágranna þínum aðra þeirra.

KOMMÚNISMI
Þú átt 2 kýr.
Ríkið tekur þær báðar og gefur þér mjólk.

FASISMI
Þú átt 2 kýr.
Ríkið tekur þær báðar og selur þér mjólk.

NASISMI
Þú átt 2 kýr.
Ríkið tekur þær báðar...og skýtur þig svo.

SKRIFRÆÐI
Þú átt 2 kýr.
Ríkið tekur þær báðar, skýtur aðra þeirra, mjólkar hina og hellir svo allri mjólkinni.

HEFÐBUNDINN KAPITALISMI
Þú átt 2 kýr.
Þú selur aðra þeirra og kaupir naut. Þú stofnar kúabú og hagnast vel. 
Þú hagnast vel, selur kúabúið og sest í helgan stein

SÚRREALISMI
Þú átt 2 gíraffa.
Ríkið krefst þess að þú farir í harmonikkunám.

BANDARÍSKA FYRIRTÆKIÐ
Þú átt 2 kýr.
Þú selur aðra þeirra og þvingar hina til að gefa af sér mjólk á við fjórar kýr. Þú ræður svo sérfræðing til að komast að því hvers vegna hún datt niður dauð.

ÁHÆTTUFJÁRFESTINGAR
Þú átt 2 kýr.
Þú selur 3 þeirra til fyrirtækis á opnum markaði með veði í gervifyrirtæki mágs þíns, gengur svo frá yfirtöku með vísan í skráningu á markaði þannig að þú færð allar 4 kýrnar tilbaka og skattaívilnanir vegna einnar til viðbótar.
Afurðarétturinn af kúnum 6 er færður yfir á fyrirtæki í Karíbahafinu, en leynilegur meirihlutaeigandi þess selur þér aftur réttinn að öllum 7 kúnum.
Samkvæmt ársskýrslu á fyrirtækið nú 8 kýr, með eigendarétti að einni til viðbótar. Þú selur eina kú til þess að þóknast ónefndum stjórnmálamanni og átt þá níu kýr. 
Rétturinn að nautinu er seldur almenningi í hlutafjárútboði.

FRANSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú ferð í verkfall, skipuleggur mótmæli og tefur umferð... vegna þess að þú vilt eiga þrjár kýr.

JAPANSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú endurhannar þær þannig að þær verða tíu sinnum minni, en framleiða tuttugu sinnum meiri mjólk. Þú markaðssetur svo nýja teiknimyndahetju, "Kúmann" sem nær miklum vinsældum um allan heim.

ÞÝSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú endurhannar þær þannig að þær lifa í 100 ár, éta einu sinni í mánuði og mjólka sig sjálfar.


ÍTALSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú veist ekki hvar þær eru niðurkomnar. Þú ákveður að fá þér að borða.

RÚSSNESKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú telur þær og kemst að því að þú átt 5 kýr.
Þú telur þær aftur og kemst að því að þú átt 42 kýr.
Þú telur þær enn og aftur og kemst að því að þú átt 2 kýr.
Þú hættir að telja og opnar aðra vodkaflösku.

SVISSNESKT FYRIRTÆKI
Þú átt 5000 kýr. Engin þeirra tilheyrir þér í raun.
Þú rukkar eigendurna fyrir geymsluna.

KÍNVERSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú ræður 300 manns til að mjólka þær. Þú segir atvinnuleysi í lágmarki og blómstrandi landbúnað. Þú handtekur fréttmanninn sem sagði frá stöðunni eins og hún er í raun og veru.

INDVERSKT FYRIRTÆKI
Þú átt tvær kýr.
Þú tilbiður þær.

BRESKT FYRIRTÆKI
Þú átt tvær kýr.
Báðar eru með gin-og klaufaveiki

ÍRASKT FYRIRTÆKI
Allir virðast eiga fjölda kúa.
Þú segir öllum að þú eigir enga.
Enginn trúir þér svo þeir sprengja þig í tætlur og ráðast inn í landið. Þú átt enn engar kýr, en þú býrð þó amk í lýðræðisríki núna...

ÁSTRALSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Bissnessinn gengur vel.
Þú lokar skrifstofunni og færð þér nokkra kalda til að halda upp á það.

NÝ-SJÁLENSKT FYRIRTÆKI
Þú átt tvær kýr.
Sú til vinstri er asskoti löguleg.



» 0 hafa sagt sína skoðun

28.04.2008 16:23:11 / puff

PRÓFALOK......

Júhú,

ég er búin í prófum og náði öllum...:haha:

Eyddi rúmum 2 vikum í að vinna rosalega erfitt verkefni sem er svokallað misserisverkefni eða missó. Það var ein erfiðasta hópavinna sem ég hef nokkru sinni á æfinni tekið þátt í. Sumir voru bara ekki að skilja innihald hópavinnu, og þannig var nú bara það. En það hafðist  að lokum og bíð ég eftir því að fá einkunn úr því.

Guðs lifandi fegin að komast heim til konu og barna, eftir alltof langa útlegð. Byrjuð að vinna og frumsýning í næstu viku þannig að það verður nóg að gera.

Kolla og Lilja komu í heimsókn í morgun, og fóru með okkur í göngutúr. Svo fórum við Kolla í Nóatún og Kolla keypti fullt af rúnstykki og fínerí til að maula. Heima biðu Lilja og Jódís með Felix, Magnús og Messíönu en Jódís er þessa dagana að passa hana. Næs að hittast á mánudagsmorgni svona allar ekki að vinna eitthvað.....guð hvað ég hlakka til fæðingarorlofsins....1.júní.

Vell nenekki að blogga meir....Over and out.....THE PUFF


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.03.2008 01:09:03 / puff

Páskasull.is

Jæja,

páskarnir komir og langþráðfrí komið,  mikið svakalega ætlar það samt að verða fljót að líða, ég er búin að reyna að vera dugleg, en hef ekki getað lært nógu mikið. Jæja ég geri bara meira á morgun ;)

Er búin að vera að ditta aðeins að hérna heima, eða að minnsta kosti reyna það. málaði nokkra lista. En svo eru prófin á næsta leyti og ég er strax farin að kvíða. Fokking prófkvíði, ég fer í munnlegt próf í samanburðarstjórnmálum, sem verður frekar erfitt. Og venjuleg skrifleg próf í hinum.

Jæja fengum massa góðan mat hjá ömmu dúnu í gærkveldi, og svo vorum við í matarboði hjá  Gísli og Rannveigu frænku Jódísar, ýkt gaman, spiluðum trivial þangað til Maggi litli vakanaði aftur um miðnætti.

Matur hjá Pabba á morgun með öllu tilheyrandi og Mömmu á annan.

Peace over and out.
The Puff


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.03.2008 22:46:37 / puff

The puff is back

Smá uppdate,

Jódís er komin inn í lagadeildina á Bifröst, og ég er að klára aðra önnina mína í vor, svo við stöllur erum búnar að sækja um húsnæði sem gæti gengið fyrir fjölskylduna okkar. Magnús Bjartur er komin inn í leikskólann og allt lítur eins vel út og hægt er að hafa það, nema að við þurfum bara að múta kellinguni sem sér um húsnæðið svo við fáum það besta sem völ er á. Mér gengur vel í vinnuni, en það er búið að vera massa mikið að gera og ég er búin að vera að drukkna í verkefnavinnu í skólanum. Mikið svakalega er gaman að vera í skóla, ég get ekki beðið eftir því að fá að vera bara í skólanum að dúlla mér við námið ;)

Þula mín, litli tjúinn dó drottni sínum ekki alls fyrir löngu og ég verð að segja það að hennar er sárt saknað. Trýna mín er búin að vera í drama og niðursýkiskasti af söknuði til systur sinnar. En dýralæknirinn sagði að hún myndi jafna sig með tímanum greyið, hún er nú ekki vön að vera ein alltaf.

Ingibjörg og Maríanna frænkur mínar í danaveldi heiðruðu okkur með glæstri nærveru sinni í gærkveldi, en þá stemmdi móðir vor famelíunni í hrygg með öllu. Massa gott, klikkar aldrei hún mútta gamla í eldhúsinu, nema þegar hún var í tilrauna eldhúsi Ernu hér forðum daga, en á var gott að hræra í disknum aðeins, þakka fyrir sig og kíkja út í sjoppu á liðið og fá sér eina með öllu.:lol:

Jæja gott í beli, eins og amma dúna segir...Puffið over and out.


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.08.2007 23:16:13 / puff

Magnús Bjartur

Þann 22. ágúst fæddist frumburður minn. Hinn fullkomni einstaklingur sem fékk það fullkomna nafn Magnús Bjartur. Hann var 15 merkur og 51.cm. Hann kom í heiminn 01:25.

Hann er algjör draumur í dós, ótrúlega góður og sefur nánast út í eitt.

Ég skelli inn mynd af framtíðar súperstjörnunni Magnúsi Bjarti.

Kveðja Mamma Guðrún a.k.a. PUFF MAMA 


» 8 hafa sagt sína skoðun

20.08.2007 23:39:47 / puff

Barnfinnur rokkar

Núna erum við komnar heim eftir síðustu spítalaheimsókn og allt lítur betur út. komnir 3 í útvíkkun, búið að hreyfa aftur við belgnum svo nú gæti hann komið í nótt. Annars verður belgurinn sprengdur klukkan 9 í fyrramálið svo hann kemur nú á næstu 24 tímum held ég með eða án hjálpar.

» 4 hafa sagt sína skoðun

18.08.2007 09:37:31 / puff

Menningar---dagur!!!

Allt í einu fann ég mér til mikillar undrunnar að mig langaði til að blogga aftur! Það hefur ekki gerst mjög lengi, hefur fundist bara fínt að Jódís bloggaði fyrir okkur báðar, enda gerist flest það sama hjá okkur.

Ég er búin að vera í hreiðurgerð núna í góðan mánuð, ég tók eldhúsið og forstofuna í gegn, ég pússaði upp gólfið fyrir þá sem ekki vita þá er gamalt fjalargólf heima hjá mér. Svo lakkaði ég það 2 sinnum og málaði alla veggi hvíta. Þvílíkur munur!!! Við fengum góða hjálp frá Jónu og Helgu sem voru svo duglegar.

Svo breytti ég ganginum niðri í geymslu og létti þannig á öllum skápum sem voru yfir troðnir. Svefnherbergið var svo sótthreinsað, sló garðin, fór í sorpu með haug af drasli og þreif pallinn og tröppurnar smúlaði allt heila klabbið og gluggana, eitraði fyrir pöddum og er byrjuð á að pilla grasið sem stelst upp á milli hellnana, djöfull er það nú pirrandi, ég ætla að hella einhverjum viðbjóði ofaní á eftir svo það lifi ekkert undir þeim. Er búin að breyta í stofunni líka, en er bara ekki ánægð þannig að ég á nú eftir að laga það!

Jódís mín er nú orðin svolítið þreytt, enda hefur hún ekkert getað sofið í margar nætur. Hún greindist með byrjandi meðgöngueitrun þannig að Barnfinnur verður nú að fara að drífa sig í heiminn svo að mömmu batni nú. Ef fæðingin er ekki farin af stað í fyrramálið þá verður hreyft við belgnum sem gæti komið fæðingunni af stað. Ég er orðin svo spennt af fá son minn í heiminn að ég get eiginlega ekki beðið lengur.

Við Kidda kíktum á 40.þús manna tónleikana, það var geggjað stuð, mugison rokkaði feitt, djöfull voru þeir þéttir! Todmobil voru megasvalir þar sem Andrea var í gerfi Patsy Stone í Ab fab, og SSSól hafa engu gleymt þó sumir séu nú bara oeðnir gamlir. En enn og aftur sannaðist það að Bubbi er kóngurinn, og restin af liðinu hirðfíflinn hans, ég missti samt af vini mínum Garðari, en ég veit bara að hann var frábær.

Menningarnótt er svo framundan, mikið væri nú gaman að geta kíkt eitthvað, en við sjáumnú bara til með það!!!

Over and out,adios

PUFF MAMMA 


» 4 hafa sagt sína skoðun

30.05.2007 01:51:27 / puff

Lengi lifi...

Lengi lifi nýja ríkisstjórnin, ekki klúðra þessu.

Lengi lifi uppáhalds frænkur mínar og frændi á Bolungarvík, takk fyrir ógleymanlegan tíma.

Lengi lifi Lína sæta í Heilsuhúsinu, fyrir að vera krútt og góð kona, gaman að kynnast þér.

Lengi lifi fallegasta kona jarðarinnar, fyrir að vera konan mín og elska mig svona óendanlega.

Lengi lifi amma mín fyrir nokkur vel valin orð, við manneskju sem þurfti að heyra sannleikan.

Lengi lifi fasteignasalinn sem ætlar að drullast til að selja þessa íbúð, annars brjálast ég.

Lengi lifi vorið, með allt þetta líf og birtu sem því fylgir.

Lengi lifi ég fyrir að hafa loksins bloggað aftur ;)

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.04.2007 23:46:36 / puff

Barnfinnur

Í gær fórum við í sónar og fengum að vita að við eigum von á litlum prinsi. Ég varð svo glöð að það fá engin orð því lýst. Strax er ég farin að sjá fyrir mér hvað við lillimann ætlum að maukast saman í bílskúrnum, sparka bolta, leika í bíló, fara í eltingaleik og löggu og bóa. Og ekki má gleyma pleymo og lego gleðinni. Það á eftir að vera svo mikið stuð. Hann er frekar stór, við erum bara komnar 5 mánuði og nú þegar er hann bara helmingi minni en stóri bróðir þegar hann fæddist.8)

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.03.2007 23:20:40 / puff

Verðandi mæður

Þetta er litla bumbuskrallið okkar:)
Hann/hún hefur dvalið í 15 vikur í bumbunni á Jódísi mömmu.
Hægt er að fylgjast með tilveru bumbó á www.barnanet.is/lítiðleyndarmál. Sendiði mér email ef þið viljið aðgang.
 
Við elskum ykkur,
Jódís, Guðrún og litla bumbubarnið:)

» 5 hafa sagt sína skoðun

11.03.2007 23:33:23 / puff

Bráðum kemur betri.....

Sökum óendanlega tímafrekra og erfiðra verkefna hef ég ekki getað létt á mér hér í góðan tíma. Kannski er sá tími kominn núna. Margt hefur legið á manni, meira verður ekki sagt.

 

Nýjustu fréttir sem gleðja mannshjartað ef svo skemmtilega vill nú til að þú lesandi góður þekkir mig eitthvað smá, eru þær að ég fékk vinnu í Borgarleikhúsinu. Reyndar bara í aukavinnu út þetta leikár, svo vonandi full vinna næsta haust, full bjartsýn en smá bjartsýni hefur engan drepið svosem.

 

Bráðum kemur betri tíð með blóm í haga, sæta langa sumardaga…….

 

En sú tilhlökkun sem brýst um í brjósti mér, er ólýsanleg. Með hverjum deginum sem líður nálgast það sem mig hefur dreymt um í svo mörg ár. Það verður raunverulegra með hverjum deginum sem líður. Takmarkið er að allt verði fullkomið þegar skrallið sullast. Þeir sem ekki vita nú þegar um hvað er talað, verða bara að bíða lengur, hahahahahahahahahaha.

 

Þeir segja að ekkert verkefni sé svo erfitt að maður geti ekki leyst þau. Skóli lífsins leggji eingöngu verkefni fyrir mann sem maður ráði við. Stundum á maður svolítið erfitt með að trúa þessu, því stundum líður mér manneskju með stúdentspróf af félasgfræðibraut að ég sé í prófi sem nemandi í masterssulli í eðlisfræði ætti erfitt með að leysa. En hvað um það. Þetta hefst allt einhvern veginn.

 

En ég verð að lýsa yfir aðdáun minni á konunni sem ég giftist, hún er svo ynnilega sú allra besta og fallegasta manneskja sem ég hef kynnst. Það sem hún gefur og gefur. Það er ótrúlegt að hún skuli ekki hafa fengið nóbelsverðlaun fyrir afrek sín á sviði mannúðar. Angelina Jolie hvað!!!!!

Konan mín á allt það besta í þessum heimi skilið. Hún skal fá allt það sem er allrabest og það sem hún þráir mest.

Það versta er að ekki allir kunna að meta gjafirnar sem hún færir, en það veit ég að henni verður launað þegar hún fer til himna. Ástin mín, mundu bara að ég elska þig heitar en nokkur annar og meðan við göngum saman lífsins veg mun ég gera allt sem í mínu valdi stendur til þess að vernda, hugga og passa þig. Þú ert það besta sem fyrir mig hefur komið.

 

Hlakka til þess að heyra frá ykkur…..ykkar Puff


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.01.2007 12:37:40 / puff

Alltaf vitur eftirá

Loksins komin helgi, lööönnng og erfið vinnu vika. Auk veikinda, ég fokking hata að vera svona kvefuð. Hef ekki fengið svona kvef síðan ég hætti að reykja. Eins gott að ég er hætt þeim andskota. Það eru bara fáir hlutir  sem ég sé eftir að  hafa gert  eða ekki gert um æfina. 

1. Ég hefði aldrei átt að byrja að reykja. Þá hefði ég átt alltaf miklu meiri penning og lungun væru kannski í betra ástandi.
2. Ég vildi óska að ég hefði ekki verið að flýta mér svona mikið að verða fullorðin þá hefði ég kannski drullast til þess að klára ,menntó á réttum tíma og ég gæti verið orðin háskólagengin núna.
3.Ég vildi að ég hefði haft meiri áhuga á íþróttum, þá væri svo margt eitthvað auðveldara.

En svona er þetta víst, maður lærir bara á því að lifa. Ég get alltaf bara gert mitt besta í hvert sinn, á hverju stigi, og það sem mér finnst réttast að hverju sinni. En ofsalega er ég alltaf vitur eftir á. hahahaha:lol:

Ég er að stefna á eitthvert nám í mjög svo nánustu framtíð, ég er loksins tilbúin.

Over and out, yours truly Puffetípuff

» 3 hafa sagt sína skoðun

13.01.2007 11:33:34 / puff

Puffið í ruglinu


Ég er dottin í þráhyggjuna, ég verð að eignast nýjustu týpuna af Mercedes Bensanum.  CLS-Class, úff línurnar eru sko í lagi á þessum, hann er lipur og snöggur er maður skildi nú þurfa að þreyta bensínfótinn örlítið;) Það sem ég ekki gæfi fyrir þennan bíl.

 

 

 

Nennir einhver að segja mér af hverju maður er óendanlega heimskur þegar maður er unglingur!!! Ef ég hefði nú bara lufsast til þess að klára skólan og farið beint í háskólanám að því loknu, ég gæti verið orðin sálfræingur, viðskiptafræðingur, læknir eða bara lögfræðingur, hú kers. Þá hefði ég efni á að kaupa mér þessa glæsikerru. En svona er lífið víst, og maður er alltaf vitur eftir á.

 

 

 

Ætli maður reyni ekki að lufsa sér í eitthvert nám á næstunni. Það þýðir víst lítið að vera bara með stúdentspróf. Það er bara leim.

 

 

 

Eigiði góðar stundir gott folk, ykkar Pöff kveður. 


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.12.2006 23:35:39 / puff

Júhúúú

 Ég fékk frábæra vinnu hjá K.Rickter. Lagerjobb, alveg frábært.

Allt einhvernveginn að slípast og gerast. Er frekar happý og er smá farin að hlakka til jólanna. Einhvernvegin mikill sigur fyrir mig, það er frekar sjaldgæft.

Jæjps, hlakka til að heyra frá ykkur vinir og kunningjar kærir.:lol:

Kv Puff


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.11.2006 13:02:03 / puff

Reykjavík, Ó Reykjavík þú yndislega BORG

d

Key, ykkur til mikillar ánægju, yndisauka og dægrastyttingu, ætla ég að blogga áfram,

 Bara nokkur meginatriði;

 

-Var að flytja til RVK, beriði virðingu,

-Er yfirmáta ástfangin af konunni minni, hún er svo óendanlega falleg, hugxa að ég  haldi þessari bara.

-Er enþá að leyta mér að vinnu, var komin með vinnu, en þeir lugu að mér í hverju starfið væri fólgið, þannig að ég sagði þeim bara að fara í rassgat.

-Ég á heima í Skerjó, æskudraumur minn hefur ræst. Ég bara elska þetta.

-Vill einhver koma á kaffihús?

- Mig langar að gera tónlist vill einhver stofna með mér hljómsveit, þarf ekki að vera orginal band, bara þeir sem vilja skemmta sér með mér og svo sjáum við hvað gerist!!!

 

Ok gott í bili, var búin að blogga tvisvar, nennti ekki að gera aðra færðslu.
 

Kveðja over und out, Sir Puff


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
Myndirnar okkar.
Krúttlegt
Tónlistin mín
Fullorðins ;)
Skólinn minn
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
Leitarbox