
Ég er dottin í þráhyggjuna, ég verð að eignast nýjustu
týpuna af Mercedes Bensanum.
CLS-Class, úff línurnar eru sko í lagi á þessum, hann er
lipur og snöggur er maður skildi nú þurfa að þreyta bensínfótinn
örlítið
Það sem ég ekki gæfi fyrir þennan bíl.
Nennir einhver að segja mér af hverju maður er óendanlega
heimskur þegar maður er unglingur!!! Ef ég hefði nú bara lufsast
til þess að klára skólan og farið beint í háskólanám að því loknu,
ég gæti verið orðin sálfræingur, viðskiptafræðingur, læknir eða
bara lögfræðingur, hú kers. Þá hefði ég efni á að kaupa mér þessa
glæsikerru. En svona er lífið víst, og maður er alltaf vitur eftir
á.
Ætli maður reyni ekki að lufsa sér í eitthvert nám á
næstunni. Það þýðir víst lítið að vera bara með stúdentspróf. Það
er bara leim.
Eigiði góðar stundir gott
folk, ykkar Pöff kveður.