Smá uppdate,
Jódís er komin inn í lagadeildina á Bifröst, og ég er að klára aðra önnina mína í vor, svo við stöllur erum búnar að sækja um húsnæði sem gæti gengið fyrir fjölskylduna okkar. Magnús Bjartur er komin inn í leikskólann og allt lítur eins vel út og hægt er að hafa það, nema að við þurfum bara að múta kellinguni sem sér um húsnæðið svo við fáum það besta sem völ er á. Mér gengur vel í vinnuni, en það er búið að vera massa mikið að gera og ég er búin að vera að drukkna í verkefnavinnu í skólanum. Mikið svakalega er gaman að vera í skóla, ég get ekki beðið eftir því að fá að vera bara í skólanum að dúlla mér við námið

Þula mín, litli tjúinn dó drottni sínum ekki alls fyrir löngu og ég verð að segja það að hennar er sárt saknað. Trýna mín er búin að vera í drama og niðursýkiskasti af söknuði til systur sinnar. En dýralæknirinn sagði að hún myndi jafna sig með tímanum greyið, hún er nú ekki vön að vera ein alltaf.
Ingibjörg og Maríanna frænkur mínar í danaveldi heiðruðu okkur með glæstri nærveru sinni í gærkveldi, en þá stemmdi móðir vor famelíunni í hrygg með öllu. Massa gott, klikkar aldrei hún mútta gamla í eldhúsinu, nema þegar hún var í tilrauna eldhúsi Ernu hér forðum daga, en á var gott að hræra í disknum aðeins, þakka fyrir sig og kíkja út í sjoppu á liðið og fá sér eina með öllu.

Jæja gott í beli, eins og amma dúna segir...Puffið over and out.