Nafn: Guðrún svo Lilja, Magnúsdóttir
Fæðingardagur: 28.06.1980
Dvalarstaður: Dvalarheimili samkynheigðra kvenna á Egilsstöðum, að Ekkjufelli(viðeigandi finnst þér ekki
)
Búskapur: Einn kvennmaður, einn unglings piltur, tveir hundar, annar spikfeit og hin er minni en kötturinn( báðar algerar mömmustelpur) og kötturinn Kisi(sem á við persónuleikaröskunar vandamál að etja greyið kisinn)
'Ahugamál: Ökutæki af öllum stærðargráðum, börn, skepnur (þó aðalega kýr), konur (þ.e.a.s. ein að nafni Jódís), og ekki má gleyma nýjasta áhugamálinu skotvopn ( ætla að fá mér leyfi og fara að stunda veiðar
) Leikhús og kvikmyndabransinn eins og hann leggur sig, hljóð og tónlist og úrvinnsla hennar (framtíðarjob). Og ekki má gleyma fjölskyldunni í öllum hennar myndum og blessuðu vinunum mínum.
Lönd sem ég hef konið til: 'Island augljóslega, danmörk, svíþjóð, noregur, finnland, þýskaland, ítalía, sviss, bandaríkinn, england, írland og vestmannaeyjar.
Skóstærð: 41 (svona oftast)
Það sem ég gleðst mest yfir í lífinu:
Þegar ég vakna upp við hliðina á fallegu konunni minni, samtölin okkar, lyktin hennar, augun hennar,drepiði mig ekki með væmnini( vill einhver stoppa hana ....)
Þegar litlu syskini mín líta upp til mín.
Þegar hundurinn minn kemur og bókstaflega knúsar mig.
Þegar ég stend mig vel og mér er hrósað, eiginlega alveg sama fyrir hvað það er.
Þegar fólk segir mér að það kann að meta mig fyrir það sem ég er og eins og ég er. ('Eg nenni nefninlega ekki að vera með stanslausan leikþátt um það hver ég er og hvað mér finnst, ég er bara eins og ég er, take it or fokking líf it)
Þegar ég fæ það sem ég vil þegar mig langar í það.
Þegar ég get gefið einhverjum sem mér þykir vænt um það sem hann/hana langar í og þegar það hentar viðkomandi.
og svo held ég áfram með The never ending story síðar.
Það sem ég hata mest í lífinu:
Stætó, borga reikninga( hef aldrei getað skilið þessa penningasóun, en ég geri það þó samt, svona samviskunnar vegna, þoli ekki að skulda penninga), að finna ekki hinn sokkinn minn, Vakna við vekjaraklukku og geta ekki sofnað aftur, uppáþrengjandi leiðinlega hálfvita sem ekki vita betur og láta mig ekki í friði, verða bensínlaus, missa af uppáhaldsþætti í imbanum, þegar eitthvað tæki virkar ekki þrátt fyrir að ég hafi lagt törfahöndum mínum yfir það, og svo milljón margir aðrir hlutir.